Chat with us, powered by LiveChat

UM OKKUR

Tryggingamiðlun Íslands ehf. er ein elsta starfandi vátryggingamiðlunin hérlendis en miðlunin var stofnuð í júní árið 1997.

Stofnandi Tryggingamiðlunar Íslands ehf. er Karl Jónsson, löggiltur vátryggingamiðlari. Eigendur eru Friðbert Elí Friðbertsson, framkvæmdastjóri og löggiltur vátryggingamiðlari og Gísli Ölvir Böðvarsson sölustjóri. Þeir hafa samanlagt starfað hjá Tryggingamiðlun Íslands í yfir 40 ár.

Tryggingamiðlun Íslands hóf starfsemi sína með miðlun til bresku líftryggingafélaganna, Friends Provident International og Axa Sun Life. TMÍ þjónustar í dag yfir 20.000 samninga fyrir félögin. TMÍ þjónustar einnig þá vátryggingarsamninga sem Baloise í Luxemborg er með á Íslandi.

TMÍ hefur miðlað tryggingum og veitt ráðgjöf fyrir Allianz í Þýskalandi og Vörð tryggingar í yfir 20 ár. TMÍ sér um tjónaafgreiðslu á viðbótartryggingum Elko sem koma frá Moderna í Svíþjóð. TMÍ tók árið 2017 yfir þjónustu á vátryggingarsamningum sem Phoenix Life á á Íslandi. Þeir samningar voru áður í þjónustu Landsbankans og hét félagið áður Swiss Life. TMÍ er Coverholder at Lloyd’s og getum við boðið fjölbreyttar lausnir í hinum ýmsu tryggingum frá Lloyd’s. TMÍ miðlar starfsörorkutryggingum og sjúkdómatryggingum frá AXIS Specialty Europe.

Í samstarfi við Vector Nordic AB bíður Tryggingamiðlun Íslands nú upp á alferðatryggingar fyrir ferðaskrifstofur og hótel í samræmi við reglugerð vegna pakkaferða og samtengdrar ferðatilhögunar sem Ferðamálastofa fer fram á.

TMÍ hefur hlotið viðurkenninguna “Framúrskarandi fyrirtæki” 11 ár í röð eða 2011-2021. Sú viðurkenning er veitt af Creditinfo eftir ítarlega greiningu og einungis um 2% fyrirtækja landsins fá þann heiður. TMÍ er eina vátryggingamiðlunin sem hefur fengið titilinn framúrskarandi fyrirtæki. Tryggingamiðlun Íslands starfar undir lögum nr 62/2019 um dreifingu vátrygginga og starfar undir eftirliti Fjármálaeftirlitsins. TMÍ er með starfsábyrgðartryggingu löggiltra vátryggingamiðlara og er sú trygging hjá Verði tryggingum. TMÍ fagnar á árinu 2022 25 ára afmæli.